Jæja vinur minn hann Stebbi Cool eins og afturhaldsseggir og ábyrgðarfría liðið kallar hann fékk í gær standandi lófaklapp fyrir tillögur sínar um að stytta afgreiðslutíma skemmtistaða í miðbænum til klukkan 2. Frábært, frábært og kannski eitthvað mis?. Já hann vill loka stöðunum klukkan 2 í 101 RVK og gefa frekar leyfi á næturklúbba í úthverfum borgarinnar. já?
Maður væri sem sagt kannski í gúddí fíling á einhverju öldurhúsinu í miðbænum þegar að lokaði og klukkan aðeins 2. Við félagarnir ætlum okkur ekki að hætta þar sem það er enginn morgundagur (skiljið, no tomorrow, töff). Jú við förum bara undir lófaklappi sem liggur leið í átt að garðabænum þar bíður okkar lúðrasveit er við leggjum um 02:30 á leigufáknum fyrir utan Café Arnarnes í Súlunesinu. Þar er hinsvegar heljarinnar röð en við látum okkur hafa það, ég meina það er opið til sex. Ekkert vesen hér, nei nei.
Skil t.d. ekki í liðinu sem stjórnar þarna í lundunúm ,þar sem maður heldur nú oft til, skuli leyfa yfir höfuð næturklúbbum að hafa opið til kl 6 eða jafnvel lengur. Ég meina, ef það væri opið styttra myndu færri dópa, það er alveg gefið mál skv. okkar háttsettum. Ef það væri opið styttra myndi fólk ekki slást. Ég meina fólk slóst ekkert hérna í gamla daga. Eða hvað?
Og ef að þessar tillögur ná fram að ganga þá vitna ég hérna í fyrirsögn af mynd frá forsíðu fréttablaðsins í framtíðinni sem hann Andri félagi sá (hann er skyggn, ofur skyggn).
Fulltrúi íbúaráðs Grafarvogs sést hér klippa á borða og opna formlega hinn nýja Glaumbar3000 í Spönginni. Staðurinn sem tekur um 2500 manns var formlega opnaður í gær við dynjandi lófatak íbúa Rima og Húsahverfis.
Eða úr helgarblaði DV í þessari sömu framtíð...
Stytting opnunartíma í miðbænum bjargaði lífi mínu: Tómas Jakobsson fyrrverandi fíkill þakkar Stefán Eiríkssyni fyrir að hafa bjargað sér frá dópinu með því að stytta opnunartíma Café Amsterdam til 2. “Loksins gat ég hætt að dópa. Hvar átti ég annars staðar dópa? Takk Stebbi.”
Tökum dæmi.
“Glæpum hefur fjölgað snarlega undanfarin ár og eru yfirvöld ráðþrota við vandanum”
Lausn:
“Ég veit. Bönnum barneignir. Þá fækkar fólki sem þýðir fækkun glæpamanna sem þýðir fækkun glæpa ekki satt?”
Eða í staðinn fyrir að breyta vandamálinu, væri kannski hægt að leysa vandamálið. Með því t.d. að taka ábyrgð og halda áfram þessum fínu aðgerðum með sýnileika lögreglunnar. Og einnig að Stefán hætti að tala um liðið í miðbænum sem eitthvað LIÐ, sbr.
“já bíddu varstu í bænum um helgina?”
“já, var til 5”
“ ok, þannig að þú ert forhertur dópisti og svartur blettur á þjóðfélaginu?”
“já, ok?”
Við munum öll þegar við vorum lítil og við gerðum eitthvað rangt, þá var sagt “þetta er bannað” en við gerðum það samt aftur. Þar til mamma kom og skýrði út fyrir okkur af hverju þetta var bannað, þá hættum við því. Allavega flest okkar. Flest ykkar.
PLR og R&R